Við Vesturgötu 55 í Vesturbænum hefur bólstrarinn Sigurrós komið sér fyrir með vinnustofu sína ásamt eiginmanni sínum. Hún er ein af fáum konum sem starfa við bólstrun hér á landi, en alls eru um tuttugu bólstrarar starfandi á Íslandi í dag. Í fremri hluta húsnæðisins er vinnuaðstaða eiginmanns hennar, hönnuðarins Steins Steinssonar, sem starfar í auglýsingageiranum. Steinn er mikill kaffiunnandi og bauð okkur upp á dýrindis cappuccino úr glæsilegri espressóvél. Fyrir ofan kaffiaðstöðuna hangir gamalt Kórall-skilti sem prýddi framhlið hússins þegar þau keyptu það fyrir sex árum. Kórall starfaði þar um árabil og ákváðu þau hjónin að varðveita merkið sem kemur flott út fyrir ofan kaffiaðstöðuna. Sigurrós segist ekki vera verkefnalaus og að biðin eftir bólstrun sé sífellt að lengjast. Við kíktum í heimsókn til Sigurrósar og fengum að forvitnast um gömul og ný verkefni. Þegar inn er komið í fremra rými verkstæðisins tekur á móti manni heill veggur þakinn áklæðisprufum. Augu okkar leita strax að skemmtilega mynstruðum efnum í retró-anda sem vekja athygli. Sigurrós segir okkur að efnin séu eftir finnska textílhönnuðinn Johönnu Gullichsen. | ||
Ég rakst á efnin frá Johanna Gullichsen út í Helsinki fyrir rúmum 10 árum og varð strax mjög skotin í þeim. Þá var ég enn að læra bólstrun en ákvað að þegar ég væri komin með mitt eigið fyrirtæki vildi ég bjóða upp á þessi áklæði. Johanna Gullichsen er með sterkar tengingar inn í finnska hönnunarsögu en amma hennar, Marie Gullichsen var einn af stofnendum Artek. Hún sækir innblástur meðal annars í gömul skandinavísk vefnaðarmunstur. Eitt munstrið minnir t.d. mjög á það sem oft er kallað Salún á Íslandi.


Sigurrós útskrifaðist sem bólstrari árið 2017. Eftir tveggja ára nám í húsgagnasmíði í Tækniskólanum var hún í læri hjá Lofti Þór Péturssyni bólstrarameistara í tvö ár. Til að byrja með var Sigurrós bólstrari með aðstöðu á verkstæði Lofts, Bólsturverki. En hún opnaði svo sitt eigið verkstæði á Vesturgötunni. | ||
Áklæði á húsgögn þurfa að vera slitsterk, uppfylla ákveðna staðla hvað varðar brunavarnir og að sjálfsögðu vera þægileg og falleg. Ég nota langmest ullaráklæði því ullin tikkar í öll þessi box. Auk þess að vera náttúrlega eldtefjandi er vel hægt að nudda flesta bletti úr ullaráklæðum.
Ég er með áklæði frá finnskum, dönskum og norskum framleiðendum en einnig tveimur breskum. Svo er ég líka með íslenskt ullaráklæði frá Material Nord, reyndar framleitt í Bretlandi.


Poet sófinn eftir Finn Juhl hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Mér fannst tilvalið að leyfa sófanum að vera svolítið áberandi og valdi því fallegan bleikan lit á hann. Áklæðið sem ég valdi heitir Watercolour sem Kjellerup Væveri framleiðir í samstarfi við House of Finn Juhl. Textílhönnuðirinn Lykke Bloch Kjær vann litina upp úr vatnslitateikningum Finn Juhl.

Lykke Bloch Kjær vann litina upp úr vatnslitateikningum Finn Juhl.
Ég gef mér ekki mikinn tíma í slík verkefni þar sem oftast er erfitt að fá nógu gott verð til að það borgi sig. Manninum mínum finnst hins vegar mjög gaman að fara í Góða hirðinn svo það ratar oft eitthvað heim með honum sem ég get gripið í þegar tími gefst.

Sigurrós hefur stundum nýtt afgangsefni úr stærri verkefnum til að gefa gömlum kollum og litlum stólum nýtt líf. Stólana finnur hún á nytjamörkuðum eða á netinu. Kollarnir og stólarnir koma skemmtilega út í efni Johönnu Gullichsen en Sigurrós finnst gaman að grípa í minni verkefni á milli stærri bólstrunarverka enda minna tímafrek. Hún pantar inn og selur einnig sokka með einkennandi munstrunum frá finnska hönnuðinum en gefur sér ekki eins mikinn tíma að auglýsa þá. „Mamma er líklega besti sokkakúnninn minn,“ segir hún og hlær. „Hún kaupir reglulega sokka af mér.“ | ||

Muslingen eftir Arnold Madsen sem prýðir fallegt heimili í Breiðholti.

Þegar ég var nýbyrjuð hér á Vesturgötunni gerði ég stól sem er kallaður Oda chair, hann var ansi krefjandi og ég neyddist til að panta meira efni því mér tókst ekki nógu vel til í fyrstu tilraun. Það sem gerði þetta samt eftirminnilegan stól var að ég var nýbúin að lesa mér heilmikið til um stólinn og hvernig hann var ranglega eignaður Nönnu Ditzel í mörg ár þangað til nokkrir grúskarar komust að því að hann var hannaður af bólstraranum Arnold Madsen. Ég hef líka klætt aðra stóla eftir Arnold Madsen, það er Clam chair eða Muslingen en hann var líka lengi ranglega eignaður öðrum hönnuðum, mjög spennandi og skemmtilegt allt saman.

Ég fékk tvo svona stóla sem greiðslu upp í verk sem ég vann fyrir nokkrum árum. Með þeim fylgdi áklæði eins og stólarnir voru klæddir upprunalega svo ég stefni á að koma þeim einhvern tímann í upprunalegt horf.
Það eru þó nokkrir sem ég hef unnið fyrir oftar en einu sinni. Viðskiptavinir mínir eru bara allskonar fólk en það er áberandi að húsgögnin sem ég geri hafa oftar en ekki tilfinningalegt gildi fyrir viðkomandi, stóllinn sem afi sat alltaf í eða borðstofustólar af æskuheimilinu. Húsgögnin hafa oft verið lengi í fjölskyldunni og þar af leiðandi er fólk tilbúið til að leggja í kostnað til að viðhalda þeim.


Það er oft erfitt að svara því hvort það borgi sig að gera eitthvað upp, langoftast er mun ódýrara að kaupa nýtt en það er sjaldan eins vandað og endingargott og gömlu húsgögnin. Svo spila tilfinningar mjög sterkt inn í þetta líka. Hvers virði er ættargripur? Ég er annars mjög þakklát hvað það eru margir sem velja frekar að láta bólstra og gera upp húsgögn en ekki bara henda og kaupa nýtt, það er líka svo miklu betra fyrir umhverfið.
"Gamlar mublur geyma oft góðar minningar og það er einstaklega skemmtilegt að fá að framlengja líf þeirra." | ||
Ég er svosem ekki með nein töfraráð en það er alltaf gagnlegt að ryksuga sófa og stóla og svo þrífa og bera á tréverk þegar það á við.
Poet sófinn er kominn í hús svo nú væri Pelíkani eftir Finn Juhl eða Spæleggið eftir Hans Olsen efst á óskalistanum.


Fyrsta skref er að senda mynd í tölvupósti, þá get ég metið hversu mikið verkið gæti kostað. Í framhaldinu væri svo hægt að finna tíma til að skoða og velja áklæði. Það hefur verið ansi mikið að gera undanfarin ár svo það má búast við að ferlið taki nokkra mánuði.
Veist þú um fallegt heimili með karakter eða skemmtilega sögu?
Í fallegu húsi hafa Arndís og Aron komið sér notalega fyrir ásamt tveimur börnum sínum. Húsið var reist á áttunda áratugnum og upprunalegur tíðarandi þess hefur fengið að halda sér. Þegar gengið er inn í stofuna taka á móti manni stórir gluggar sem snúa út að grónum almenningsgarði og minna helst á lifandi listaverk. Húsið er á nokkrum pöllum sem afmarka rýmin á skemmtilegan hátt og gera þau notaleg. Það leynir sér ekki að hér býr fólk með næmt auga fyrir fallegum hlutum. Arndís er mikill hönnunarunnandi og hefur sérstakan áhuga á að finna fallega muni, bæði á mörkuðum hér heima og erlendis. Á heimilinu má einnig greina kínversk áhrif en amma hennar í föðurætt var kínversk og var Arndísi mjög kær. Það er skemmtilegt að sjá heimili þar sem fólk fylgir ekki endilega tískustraumum og þorir að blanda saman nýju og gömlu. |
Við heilluðumst af húsinu um leið og við löbbuðum fyrst inn í það árið 2022. Það sem greip okkur var nálægðin við náttúruna en húsið er neðst í botnlanga og snýr að Seljadal, sem er falin náttúruperla hér í Breiðholti. Í götunni var einnig vinnustofa og heimili myndhöggvarans Hallsteins Sigurðssonar, svo við fáum að njóta verka hans út um gluggann hjá okkur.
Húsið var byggt árið 1978 og var teiknað af Hróbjarti Hróbjartssyni. Það sem heillaði okkur helst við húsið voru stóru gluggarnir og upprunalegur stíll þess. Á veggjum og í lofti er panell ásamt sjónsteypu og hrauni, með Höganas-flísum á gólfum, sem gerir húsið einstaklega hlýlegt. Eyjólfur Pálsson, stofnandi Epal, hannaði alla fataskápa hússins í náttúrulegum grænum lit sem tónar vel við restina af húsinu. Við lögðum áherslu á að finna hús með vandaða hönnun sem hafði verið viðhaldið af virðingu við hönnunina, það skipti okkur miklu máli.


Ég myndi segja að stíllinn minn væri mjög persónulegur, þar sem flestir hlutir hér hafa sína sögu. Síðan ég var unglingur hef ég safnað hlutum, húsgögnum og listaverkum sem mér finnst falleg. Ég er mikill safnari og bíð stundum í mörg ár eftir að finna rétta hlutinn. Við leggjum líka áherslu á að kaupa vandaða hluti inn á heimilið sem við getum hugsað okkur að eiga til langs tíma. Ég dregst mikið að gömlum hlutum, sérstaklega frá fimmta, sjötta og sjöunda áratugnum, vegna þess hversu vandaðir þeir eru og sérstakir. Flest húsgögn höfum við keypt notuð eða fengið frá fjölskyldum okkar í gegnum tíðina og mér finnst það gefa heimilinu meiri hlýleika og persónulegan stíl. Mamma var líka alltaf með mikið af bókum á heimilinu þegar ég ólst upp og mér finnst bækurnar vera algjörlega ómissandi hluti af heimili og hef safnað þeim í mörg ár fyrir mig og börnin mín. Það var líka alltaf mikið af listaverkum upp um alla veggi og margir mjög listrænir í fjölskyldunni. Ég hef notið góðs af og er með mikið af verkum eftir ömmu og systur mína á heimilinu sem mér þykir mjög vænt um.


Það er fallegt að hugsa til þess að margir af mununum á heimilinu hafa gengið á milli kynslóða. Það undirstrikar hversu mikilvægt er að velja vel það sem maður kaupir, ekki bara til að lengja líftíma hlutanna og draga úr kolefnisspori, heldur líka til að varðveita persónulegar minningar. |

Þetta eru tveir „Muslinge“ stólar sem ég erfði frá ömmu minni og afa. Stólarnir eiga sér nokkuð flókna sögu og var lengi á huldu hver hefði hannað þá. Það var ekki fyrr en fyrir tiltölulega stuttu að talið var sannað að danski hönnuðurinn Arnold Madsen hefði teiknað þá fyrst árið 1944. Hönnunin minnir á opna skel sem þeir draga nafn sitt af.
Þeir voru með bláu ullaráklæði þegar ég fékk þá fyrst, en ég lét nýlega bólstra þá í upprunalegum stíl sem mér finnst hafa komið einstaklega vel út. Stólarnir voru alltaf við skrifborðið hjá afa þar sem ég sat og horfði á hann grúska svo þeir vekja upp hlýjar og góðar minningar.


Amma mín var af kínverskum uppruna svo ég ólst upp í kringum mikið af kínverskum munum en uppáhalds hluturinn minn sem tengist Kína er útskorna kistan sem ég fékk í skírnargjöf. Nú er það orðin eins konar hefð að börnin í fjölskyldunni fá kínverska kistu þegar þau fá nafn, þ.á.m. börnin mín sem fengu bæði kistu frá pabba mínum. Við geymum ýmsar minningar í kistunum eins og fyrstu fötin þeirra, teikningar og kort, og mér finnst það eiga vel við.

Mér finnst það sem gerir heimili notaleg vera þegar persónuleiki fólks fær að skína í gegn. Heimili verður ekki til með einni búðarferð, eða með háum peningaupphæðum að mínu mati. Það þarf ekki að vera skínandi nýtt eða fullkomið heldur. Bara að manni líði vel heima hjá sér skiptir mestu máli.
Já ég tengi mjög mikið, það skemmtilegasta sem ég geri er að fara á nytjamarkaði. Ég er orðin hálfgerður fastagestur í Góða Hirðinum og hef fundið ýmsa fjársjóði þar. Ég skrolla líka mjög reglulega í gegnum Facebook Marketplace og hef fundið ýmislegt nytsamlegt þar. Ég skoða mest skrautmuni, myndir og bækur þegar ég fer á markaði. Það er erfitt að velja einhvern einn uppáhalds en gæti nefnt fiskaskálina og keramíkvökvunarkönnuna. Amma mín fann á nytjamarkaði styttu eftir Hallstein Sigurðsson sem hún gaf mömmu og mamma gaf mér, hún er í miklu uppáhaldi. Svo hef ég fundið heilmikið af fallegum bókum, eins og bók um listamanninn Mugg frá 1960 og ýmsar Astrid Lindgren bækur sem er algjört uppáhald á þessu heimili.


Ég verð að segja stofan því útsýnið og birtan eru svo falleg. Ég stunda það mikið að horfa út um gluggann í stofunni á fuglalífið í dalnum. Þar er líka hæst til lofts og sjónsteypan fær að njóta sín.


Við fengum hilluna gefins í gegnum Facebook og duttum alveg í lukkupottinn þar. Ég sá strax að hillan myndi passa vel inn til dóttur minnar. Svo kom í ljós að hillan var sérsmíðuð handa barni sama ár og húsið okkar var byggt. Það lítur því út eins og hún hafi fylgt húsinu því hún passar svo vel þar inn. Dóttir mín stendur við hilluna löngum stundum og dundar sér sem er alveg frábært að sjá.



Fyrir utan erfðagripi myndi ég segja tekk skenkurinn í stofunni og hillan í herbergi dóttur minnar. Skenkurinn geymir alls konar dýrgripi og nýtist því líka mjög vel. Mér finnst hann smellpassa inn á heimilið og gefur stofunni hlýleika.


Já það er ýmislegt sem við viljum gera en á meðan viljum við halda í upprunalegan stíl hússins. Við t.d. breyttum neðstu hæðinni í íbúð sem við leigjum út en á þann hátt að það er auðvelt að breyta til baka. Annað baðherbergið er ekki upprunalegt og okkur langar að gera það upp í svipuðum stíl og það var í upphafi, við erum með sýnishorn af flísum frá þeim tíma sem við myndum vilja nota sem innblástur. Húsið er mjög vel skipulagt og því lítið sem þarf að uppfæra annað en bara eðlilegt viðhald.

Veist þú um fallegt heimili með karakter eða skemmtilega sögu?

Frá pedalafötu til hágæða eldhúseininga
Í dag hefur Vipp stækkað verulega — þó þau framleiði enn pedalafötuna nánast óbreytta, framleiðir fyrirtækið nú fjölbreytt úrval tímalausra hönnunarvara,
allt frá vönduðum munum fyrir baðherbergi og eldhús yfir í lýsingu og stærri húsgögn og jafnvel forsmíðuð heimili. Allt í anda þeirrar hráu, iðnaðarlegu
fagurfræði sem Vipp hefur haldið tryggð við frá upphafi.
Eitt af stærstu og djörfustu skrefunum hjá Vipp var þegar þau hófu framleiðslu á eldhúsum. Fyrsta eldhúsið kom út árið 2011 og var einstakt: frístandandi,
samsett úr duftlökkuðu stáli, ryðfríu stáli og áli. Eldhúsið var ekki hannað sem innbyggð lausn, heldur sem húsgagn — sterkbyggt, færanlegt og hannað til að
endast í áratugi. Þetta er iðnaðarhönnun sem mætir heimilislífi.
Þú finnur hágæða eldhús frá Vipp hjá Munir
Kosturinn við að kaupa gæði fram yfir annað er að varan fellur ekki mikið í verði með tímanum. Flott hönnunarljós á borð við Louis Poulsen, Flos, Fritz Hansen, Gubi og fleiri eru einfaldlega góð fjárfesting þar sem verðgildi vörunnar helst með árunum vegna gæða vörunnar. Sambærileg ný vara hækkar með verðbólgu og því er söluverð vörunnar sem þú keyptir ekki að falla.
Það getur verið snúið að verðsetja notaða vöru og þess vegna tókum við saman nokkur atriði sem við teljum að sé gott er að hafa í huga þegar þú skráir notaða vöru til sölu. Við viljum taka það fram að þetta er eingöngu tillaga og okkar álit, seljandinn sjálfur þarf að finna það hjá sér hvað hann er tilbúinn að selja vöruna á.
Hér koma fjórar góðar ástæður fyrir því að kaupa notaða hönnunarvöru eða húsgögn.
Taktu þátt í hringrásinni og gerðu heimilið þitt að þínu.
1. Gæði fyrir minni pening
Flestar hönnunarvörur og húsgögn eru gerð til að endast vel. Efniviður er vandaður og vel valinn og því færðu meiri gæði fyrir minni pening heldur en þegar þú kaupir nýtt.
2. Þú hjálpar umhverfinu
Þegar þú kaupir notað ertu ekki bara að nýta eitthvað sem er þegar til, heldur ertu líka að minnka eftirspurn eftir nýjum vörum og kemur þannig í veg fyrir að ný vara er framleidd. Það er svo mikið til af húsgögnum og húsmunum í heiminum, við viljum minnka framleiðslu og fækka hlutum sem annars enda í landfyllingu.
3. Tímalaus hönnun og einstakir munir
Margar hönnunarvörur lækka ekki mikið í verði í með tímanum og eru því góð fjárfesting. Ef varan er vel gerð og vel með farin þá er nánast alltaf hægt að endurselja hana, sérstaklega ef það er þekkt hönnun. Svo er líka hægt að finna hluti sem eru ekki jafn þekktir, jafnvel hættir í framleiðslu og þá eykst eftirspurn eftir slíkum munum.
4. Persónulegra heimili
Það er alltaf gaman að koma inn á heimili með persónulegum blæ og líta ekki út fyrir að vera sýningarrými í stórverslun. Með því að kaupa notaða hönnunarvöru getur þú gert heimilið þitt persónulegra og bætt við hlutum með persónulegum bakgrunni.
Við erum vinkonur sem báðar hafa menntun og bakgrunn í hönnun. Okkur fannst vanta almennilegan vettvang fyrir hönnunarunnendur eins og okkur til að finna og selja vandaða muni á auðveldan hátt. Okkur finnst mikilvægt að einfalda þetta ferli og stuðla að hringrás vandaðra muna.
Í dag er mikill fjöldi vara fjöldaframleiddur úr óumhverfisvænum og lélegum efnivið. Markmiðið er að nýta reynslu og kunnáttu okkar á hönnun við að útiloka þær vörur og hvetja fólk til að vanda valið við kaup á húsgögnum og húsmunum. Hér er mögulegt að kaupa ódýrari en vandaðar vörur úr góðum efnivið og um leið velja umhverfisvænni kost.
Þegar þú ákveður að selja vöru á Munir er mikilvægt að vanda myndatökur til að auka líkurnar að hluturinn seljist.
Því nákvæmari myndir og fleiri, því meiri líkur er á sölu.
Allir munir á síðunni okkar þurfa að hafa að minnsta kosti 3 myndir.