Nýr vettvangur fyrir hönnunarunnendur

01/10/2024
skrifað af Munir ehf
nyr-vettvangur

Munir er nýr vettvangur fyrir hönnunarunnendur en hér er hægt að finna og selja vandaða notaða hönnunarmuni. 

Við erum vinkonur sem báðar hafa menntun og bakgrunn í hönnun. Okkur fannst vanta almennilegan vettvang fyrir hönnunarunnendur eins og okkur til að finna og selja vandaða muni á auðveldan hátt. Okkur finnst mikilvægt að einfalda þetta ferli og stuðla að hringrás vandaðra muna. 

Í dag er mikill fjöldi vara fjöldaframleiddur úr óumhverfisvænum og lélegum efnivið. Markmiðið er að nýta reynslu og kunnáttu okkar á hönnun við að útiloka þær vörur og hvetja fólk til að vanda valið við kaup á húsgögnum og húsmunum. Hér er mögulegt að kaupa ódýrari en vandaðar vörur úr góðum efnivið og um leið velja umhverfisvænni kost. 

Vertu með okkur og stofnaðu aðgang hér á Munir!