Við Vesturgötu 55 í Vesturbænum hefur bólstrarinn Sigurrós komið sér fyrir með vinnustofu sína ásamt eiginmanni sínum. Hún er ein af fáum konum sem starfa við bólstrun hér á landi, en alls eru um tuttugu bólstrarar starfandi á Íslandi í dag. Í fremri hluta húsnæðisins er vinnuaðstaða eiginmanns hennar, hönnuðarins Steins Steinssonar, sem starfar í auglýsingageiranum. Steinn er mikill kaffiunnandi og bauð okkur upp á dýrindis cappuccino úr glæsilegri espressóvél. Fyrir ofan kaffiaðstöðuna hangir gamalt Kórall-skilti sem prýddi framhlið hússins þegar þau keyptu það fyrir sex árum. Kórall starfaði þar um árabil og ákváðu þau hjónin að varðveita merkið sem kemur flott út fyrir ofan kaffiaðstöðuna. Sigurrós segist ekki vera verkefnalaus og að biðin eftir bólstrun sé sífellt að lengjast. Við kíktum í heimsókn til Sigurrósar og fengum að forvitnast um gömul og ný verkefni. Þegar inn er komið í fremra rými verkstæðisins tekur á móti manni heill veggur þakinn áklæðisprufum. Augu okkar leita strax að skemmtilega mynstruðum efnum í retró-anda sem vekja athygli. Sigurrós segir okkur að efnin séu eftir finnska textílhönnuðinn Johönnu Gullichsen. | ||
Ég rakst á efnin frá Johanna Gullichsen út í Helsinki fyrir rúmum 10 árum og varð strax mjög skotin í þeim. Þá var ég enn að læra bólstrun en ákvað að þegar ég væri komin með mitt eigið fyrirtæki vildi ég bjóða upp á þessi áklæði. Johanna Gullichsen er með sterkar tengingar inn í finnska hönnunarsögu en amma hennar, Marie Gullichsen var einn af stofnendum Artek. Hún sækir innblástur meðal annars í gömul skandinavísk vefnaðarmunstur. Eitt munstrið minnir t.d. mjög á það sem oft er kallað Salún á Íslandi.


Sigurrós útskrifaðist sem bólstrari árið 2017. Eftir tveggja ára nám í húsgagnasmíði í Tækniskólanum var hún í læri hjá Lofti Þór Péturssyni bólstrarameistara í tvö ár. Til að byrja með var Sigurrós bólstrari með aðstöðu á verkstæði Lofts, Bólsturverki. En hún opnaði svo sitt eigið verkstæði á Vesturgötunni. | ||
Áklæði á húsgögn þurfa að vera slitsterk, uppfylla ákveðna staðla hvað varðar brunavarnir og að sjálfsögðu vera þægileg og falleg. Ég nota langmest ullaráklæði því ullin tikkar í öll þessi box. Auk þess að vera náttúrlega eldtefjandi er vel hægt að nudda flesta bletti úr ullaráklæðum.
Ég er með áklæði frá finnskum, dönskum og norskum framleiðendum en einnig tveimur breskum. Svo er ég líka með íslenskt ullaráklæði frá Material Nord, reyndar framleitt í Bretlandi.


Poet sófinn eftir Finn Juhl hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Mér fannst tilvalið að leyfa sófanum að vera svolítið áberandi og valdi því fallegan bleikan lit á hann. Áklæðið sem ég valdi heitir Watercolour sem Kjellerup Væveri framleiðir í samstarfi við House of Finn Juhl. Textílhönnuðirinn Lykke Bloch Kjær vann litina upp úr vatnslitateikningum Finn Juhl.

Lykke Bloch Kjær vann litina upp úr vatnslitateikningum Finn Juhl.
Ég gef mér ekki mikinn tíma í slík verkefni þar sem oftast er erfitt að fá nógu gott verð til að það borgi sig. Manninum mínum finnst hins vegar mjög gaman að fara í Góða hirðinn svo það ratar oft eitthvað heim með honum sem ég get gripið í þegar tími gefst.

Sigurrós hefur stundum nýtt afgangsefni úr stærri verkefnum til að gefa gömlum kollum og litlum stólum nýtt líf. Stólana finnur hún á nytjamörkuðum eða á netinu. Kollarnir og stólarnir koma skemmtilega út í efni Johönnu Gullichsen en Sigurrós finnst gaman að grípa í minni verkefni á milli stærri bólstrunarverka enda minna tímafrek. Hún pantar inn og selur einnig sokka með einkennandi munstrunum frá finnska hönnuðinum en gefur sér ekki eins mikinn tíma að auglýsa þá. „Mamma er líklega besti sokkakúnninn minn,“ segir hún og hlær. „Hún kaupir reglulega sokka af mér.“ | ||

Muslingen eftir Arnold Madsen sem prýðir fallegt heimili í Breiðholti.

Þegar ég var nýbyrjuð hér á Vesturgötunni gerði ég stól sem er kallaður Oda chair, hann var ansi krefjandi og ég neyddist til að panta meira efni því mér tókst ekki nógu vel til í fyrstu tilraun. Það sem gerði þetta samt eftirminnilegan stól var að ég var nýbúin að lesa mér heilmikið til um stólinn og hvernig hann var ranglega eignaður Nönnu Ditzel í mörg ár þangað til nokkrir grúskarar komust að því að hann var hannaður af bólstraranum Arnold Madsen. Ég hef líka klætt aðra stóla eftir Arnold Madsen, það er Clam chair eða Muslingen en hann var líka lengi ranglega eignaður öðrum hönnuðum, mjög spennandi og skemmtilegt allt saman.

Ég fékk tvo svona stóla sem greiðslu upp í verk sem ég vann fyrir nokkrum árum. Með þeim fylgdi áklæði eins og stólarnir voru klæddir upprunalega svo ég stefni á að koma þeim einhvern tímann í upprunalegt horf.
Það eru þó nokkrir sem ég hef unnið fyrir oftar en einu sinni. Viðskiptavinir mínir eru bara allskonar fólk en það er áberandi að húsgögnin sem ég geri hafa oftar en ekki tilfinningalegt gildi fyrir viðkomandi, stóllinn sem afi sat alltaf í eða borðstofustólar af æskuheimilinu. Húsgögnin hafa oft verið lengi í fjölskyldunni og þar af leiðandi er fólk tilbúið til að leggja í kostnað til að viðhalda þeim.


Það er oft erfitt að svara því hvort það borgi sig að gera eitthvað upp, langoftast er mun ódýrara að kaupa nýtt en það er sjaldan eins vandað og endingargott og gömlu húsgögnin. Svo spila tilfinningar mjög sterkt inn í þetta líka. Hvers virði er ættargripur? Ég er annars mjög þakklát hvað það eru margir sem velja frekar að láta bólstra og gera upp húsgögn en ekki bara henda og kaupa nýtt, það er líka svo miklu betra fyrir umhverfið.
"Gamlar mublur geyma oft góðar minningar og það er einstaklega skemmtilegt að fá að framlengja líf þeirra." | ||
Ég er svosem ekki með nein töfraráð en það er alltaf gagnlegt að ryksuga sófa og stóla og svo þrífa og bera á tréverk þegar það á við.
Poet sófinn er kominn í hús svo nú væri Pelíkani eftir Finn Juhl eða Spæleggið eftir Hans Olsen efst á óskalistanum.


Fyrsta skref er að senda mynd í tölvupósti, þá get ég metið hversu mikið verkið gæti kostað. Í framhaldinu væri svo hægt að finna tíma til að skoða og velja áklæði. Það hefur verið ansi mikið að gera undanfarin ár svo það má búast við að ferlið taki nokkra mánuði.
Veist þú um fallegt heimili með karakter eða skemmtilega sögu?