Upprunalegt mætir nýju í einstöku húsi í Seljahverfi

01/09/2026
skrifað af Munir ehf
Innlit-Seljahverfi
                                           



Í fallegu húsi hafa Arndís og Aron komið sér notalega fyrir ásamt tveimur börnum sínum. Húsið var reist á áttunda áratugnum og upprunalegur tíðarandi þess hefur fengið að halda sér. Þegar gengið er inn í stofuna taka á móti manni stórir gluggar sem snúa út að grónum almenningsgarði og minna helst á lifandi listaverk. Húsið er á nokkrum pöllum sem afmarka rýmin á skemmtilegan hátt og gera þau notaleg. Það leynir sér ekki að hér býr fólk með næmt auga fyrir fallegum hlutum. Arndís er mikill hönnunarunnandi og hefur sérstakan áhuga á að finna fallega muni, bæði á mörkuðum hér heima og erlendis. Á heimilinu má einnig greina kínversk áhrif en amma hennar í föðurætt var kínversk og var Arndísi mjög kær. Það er skemmtilegt að sjá heimili þar sem fólk fylgir ekki endilega tískustraumum og þorir að blanda saman nýju og gömlu.


                                           

Hvað var það sem heillaði ykkur mest við húsið þegar þið festuð kaup á því og hversu lengi hafið þið búið hér?

Við heilluðumst af húsinu um leið og við löbbuðum fyrst inn í það árið 2022. Það sem greip okkur var nálægðin við náttúruna en húsið er neðst í botnlanga og snýr að Seljadal, sem er falin náttúruperla hér í Breiðholti. Í götunni var einnig vinnustofa og heimili myndhöggvarans Hallsteins Sigurðssonar, svo við fáum að njóta verka hans út um gluggann hjá okkur.

Húsið var byggt árið 1978 og var teiknað af Hróbjarti Hróbjartssyni. Það sem heillaði okkur helst við húsið voru stóru gluggarnir og upprunalegur stíll þess. Á veggjum og í lofti er panell ásamt sjónsteypu og hrauni, með Höganas-flísum á gólfum, sem gerir húsið einstaklega hlýlegt. Eyjólfur Pálsson, stofnandi Epal, hannaði alla fataskápa hússins í náttúrulegum grænum lit sem tónar vel við restina af húsinu. Við lögðum áherslu á að finna hús með vandaða hönnun sem hafði verið viðhaldið af virðingu við hönnunina, það skipti okkur miklu máli.


Höganas-flísar á gólfum
Höganas-flísar á gólfum.

Hvernig myndir þú lýsa stílnum ykkar?

Ég myndi segja að stíllinn minn væri mjög persónulegur, þar sem flestir hlutir hér hafa sína sögu. Síðan ég var unglingur hef ég safnað hlutum, húsgögnum og listaverkum sem mér finnst falleg. Ég er mikill safnari og bíð stundum í mörg ár eftir að finna rétta hlutinn. Við leggjum líka áherslu á að kaupa vandaða hluti inn á heimilið sem við getum hugsað okkur að eiga til langs tíma. Ég dregst mikið að gömlum hlutum, sérstaklega frá fimmta, sjötta og sjöunda áratugnum, vegna þess hversu vandaðir þeir eru og sérstakir. Flest húsgögn höfum við keypt notuð eða fengið frá fjölskyldum okkar í gegnum tíðina og mér finnst það gefa heimilinu meiri hlýleika og persónulegan stíl. Mamma var líka alltaf með mikið af bókum á heimilinu þegar ég ólst upp og mér finnst bækurnar vera algjörlega ómissandi hluti af heimili og hef safnað þeim í mörg ár fyrir mig og börnin mín. Það var líka alltaf mikið af listaverkum upp um alla veggi og margir mjög listrænir í fjölskyldunni. Ég hef notið góðs af og er með mikið af verkum eftir ömmu og systur mína á heimilinu sem mér þykir mjög vænt um.




Eyjólfur Pálsson hannaði alla skápa í húsinu.


                                           

Það er fallegt að hugsa til þess að margir af mununum á heimilinu hafa gengið á milli kynslóða. Það undirstrikar hversu mikilvægt er að velja vel það sem maður kaupir, ekki bara til að lengja líftíma hlutanna og draga úr kolefnisspori, heldur líka til að varðveita persónulegar minningar.

                                           


„Muslinge“ stólar eftir hönnuðinn Arnold Madsen

Maður kemst ekki hjá því að taka eftir þessum fallegu stólum, hver er sagan að baki þeim?

Þetta eru tveir „Muslinge“ stólar sem ég erfði frá ömmu minni og afa. Stólarnir eiga sér nokkuð flókna sögu og var lengi á huldu hver hefði hannað þá. Það var ekki fyrr en fyrir tiltölulega stuttu að talið var sannað að danski hönnuðurinn Arnold Madsen hefði teiknað þá fyrst árið 1944. Hönnunin minnir á opna skel sem þeir draga nafn sitt af.

Þeir voru með bláu ullaráklæði þegar ég fékk þá fyrst, en ég lét nýlega bólstra þá í upprunalegum stíl sem mér finnst hafa komið einstaklega vel út. Stólarnir voru alltaf við skrifborðið hjá afa þar sem ég sat og horfði á hann grúska svo þeir vekja upp hlýjar og góðar minningar.


Fallegur grófur veggur á móti fínlegu String hillunum.
Kínverska kistan var skírnargjöf og geymir góðar minningar

Það er gaman að sjá hvernig kínversk áhrif blandast við fallega við skandinavíska hönnun. Áttu einhvern uppáhalds hlut sem tengist Kína?

Amma mín var af kínverskum uppruna svo ég ólst upp í kringum mikið af kínverskum munum en uppáhalds hluturinn minn sem tengist Kína er útskorna kistan sem ég fékk í skírnargjöf. Nú er það orðin eins konar hefð að börnin í fjölskyldunni fá kínverska kistu þegar þau fá nafn, þ.á.m. börnin mín sem fengu bæði kistu frá pabba mínum. Við geymum ýmsar minningar í kistunum eins og fyrstu fötin þeirra, teikningar og kort, og mér finnst það eiga vel við.


Hvaða atriði telur þú skipta mestu máli þegar kemur að því að gera heimili notalegt?

Mér finnst það sem gerir heimili notaleg vera þegar persónuleiki fólks fær að skína í gegn. Heimili verður ekki til með einni búðarferð, eða með háum peningaupphæðum að mínu mati. Það þarf ekki að vera skínandi nýtt eða fullkomið heldur. Bara að manni líði vel heima hjá sér skiptir mestu máli.

Það er oft talað um ánægjuna við að finna fjársjóði á nytjamörkuðum eða í endursölu. Tengirðu við það og hvað eru þá uppáhalds gersemarnar þínar sem þú hefur fundið?

Já ég tengi mjög mikið, það skemmtilegasta sem ég geri er að fara á nytjamarkaði. Ég er orðin hálfgerður fastagestur í Góða Hirðinum og hef fundið ýmsa fjársjóði þar. Ég skrolla líka mjög reglulega í gegnum Facebook Marketplace og hef fundið ýmislegt nytsamlegt þar. Ég skoða mest skrautmuni, myndir og bækur þegar ég fer á markaði. Það er erfitt að velja einhvern einn uppáhalds en gæti nefnt fiskaskálina og keramíkvökvunarkönnuna. Amma mín fann á nytjamarkaði styttu eftir Hallstein Sigurðsson sem hún gaf mömmu og mamma gaf mér, hún er í miklu uppáhaldi. Svo hef ég fundið heilmikið af fallegum bókum, eins og bók um listamanninn Mugg frá 1960 og ýmsar Astrid Lindgren bækur sem er algjört uppáhald á þessu heimili.

Fiskskálin fann Arndís á nytjamarkaði.
Amma Arndísar fann á nytjamarkaði styttu eftir Hallstein Sigurðsson.

Hvaða staður á heimilinu er þinn/ykkar uppáhalds?

Ég verð að segja stofan því útsýnið og birtan eru svo falleg. Ég stunda það mikið að horfa út um gluggann í stofunni á fuglalífið í dalnum. Þar er líka hæst til lofts og sjónsteypan fær að njóta sín.


Mikið af áhugaverðum bókum á heimilinu, sem gerir stofuna hlýlega.

Barnaherbergin eru einstaklega skemmtileg og falla vel að tíðaranda hússins. Eins og hillan í herbergi dóttur ykkar, fylgdi hún húsinu eða keyptuð þið hana?

Við fengum hilluna gefins í gegnum Facebook og duttum alveg í lukkupottinn þar. Ég sá strax að hillan myndi passa vel inn til dóttur minnar. Svo kom í ljós að hillan var sérsmíðuð handa barni sama ár og húsið okkar var byggt. Það lítur því út eins og hún hafi fylgt húsinu því hún passar svo vel þar inn. Dóttir mín stendur við hilluna löngum stundum og dundar sér sem er alveg frábært að sjá.


Hillan er með skúffum á hjólum.
Smáhlutahilla og myndlist eftir Ísak.

Hvert er uppáhalds húsgagnið sem kom notað inn á heimilið?

Fyrir utan erfðagripi myndi ég segja tekk skenkurinn í stofunni og hillan í herbergi dóttur minnar. Skenkurinn geymir alls konar dýrgripi og nýtist því líka mjög vel. Mér finnst hann smellpassa inn á heimilið og gefur stofunni hlýleika.

Skenkurinn og stólarnir komu notaðir inn á heimilið.

Það er orðið mjög sjaldgæft að sjá hús sem hefur fengið að halda sínum upprunalega stíl, og líklega eru fellihurðir ekki algengar á heimilum í dag. Auðvitað er þó ýmislegt sem er barn síns tíma og kallar á breytingar. Er eitthvað sem þið sjáið fyrir ykkur að vilja laga eða breyta í framtíðinni? 

Já það er ýmislegt sem við viljum gera en á meðan viljum við halda í upprunalegan stíl hússins. Við t.d. breyttum neðstu hæðinni í íbúð sem við leigjum út en á þann hátt að það er auðvelt að breyta til baka. Annað baðherbergið er ekki upprunalegt og okkur langar að gera það upp í svipuðum stíl og það var í upphafi, við erum með sýnishorn af flísum frá þeim tíma sem við myndum vilja nota sem innblástur. Húsið er mjög vel skipulagt og því lítið sem þarf að uppfæra annað en bara eðlilegt viðhald.

Takk fyrir að bjóða okkur í heimsókn.


Veist þú um fallegt heimili með karakter eða skemmtilega sögu? 

Sendu okkur línu – við viljum gjarnan heyra frá þér!

Vertu með!

Skráðu þig á póstlistann og taktu þátt í hringrásinni með okkur.

Powered by Hungryweb.