Þegar þú ákveður að selja vöru á Munir er mikilvægt að vanda myndatökur til að auka líkurnar að hluturinn seljist.
Því nákvæmari myndir og fleiri, því meiri líkur er á sölu.
Allir munir á síðunni okkar þurfa að hafa að minnsta kosti 3 myndir.
1. HAFÐU AUÐAN BAKGRUNN
Vandaðu valið á bakgrunn fyrir myndatökuna og færðu óþarfa hluti úr mynd. Besti væri að mynda við hvítan vegg því þá birtist rétti litur á vörunni. Einnig er hægt að nota hvítt blað ef erfitt er að finna auðan eða hvítan vegg. Forðastu dökka fleti því þeir draga úr birtu og gefa ekki skýra mynd af vöri.
2. NOTAÐU GÓÐA BIRTU
Mikilvægt er að mynda í góðri birtu, því myndirnar verða skýrari og hluturinn fær að njóta sín. Best er að mynda í dagsbirtu en passaðu að birtan skíni ekki beint á hlutinn. Það getur verið erfitt að mynda hluti á veturna hér á Íslandi en þá er best að reyna nýta dagsbirtuna eða góða lýsingu inni og þá er mikilvægt að birtan komi frá hliðinni ekki beint að ofan, t.d. Með góðum borðlampa. Slepptu að nota flass.
3. TAKTU MYNDIR FRÁ MISMUNANDI SJÓNARHORNI
Fyrsta myndin af vörunni þarf að vera heildarmynd tekin beint á vöruna. Það er mikilvægt að taka nokkrar myndir frá mismunandi sjónarhorni, bæði fjær sem sýnir alla vöruna og nær sem sýnir smáatriði. Þegar vörur eru myndaðar er gott að taka beint á vöruna en ef varan er lítil að leggja hana á borðið og mynda hana þar. Við mælum með að nota 1:1 skala þegar taka á símamyndir, en það er ekki nauðsynlegt.
4. TAKTU MYND AF GALLA Á VÖRU EF HANN ER TIL STAÐAR
Til að koma í veg fyrir að fólk skili vörunni er mjög mikilvægt að mynda galla eða hnjask og ekki fela neitt. Kaupandi á að vita af öllum göllum áður enn hann kaupir vöruna, hvort sem það er rispa, blettur, högg, beygla eða hvað sem það er. Gott er að nota málband til að sýna stærðina á gallanum, ef það á við.
5. TAKTU MYND AF VÖRUMERKI VÖRUNNAR
Mikilvægt að taka mynd af vörumerki vörunnar ef það er sýnilegt.
6. FORÐASTU AÐ MYNDIN SÉ ÓSKÝR
Skýrar myndir sýna betur vöruna og því meiri líkur á sölu. Ef tekið er mynd á síma er ekki gott að zoom-a inn á vöruna því um leið og það er gert þá missir myndin gæði.
7. EKKI NOTA “PHOTO FILTER” EÐA VINNA MYNDIRNAR
Mikilvægt að nota ekki filter því litur á vörunni breytist töluvert við það. Myndirnar þurfa að endurspeigla vöruna eins og hún er í dag.
8. FINNDU VÖRUMYND AF VÖRUNNI
Við viljum biðja ykkur að finna eina vörumynd af vörunni og raða henni fremst í myndaröðinni. Við mælum með að nota Google Lens ef þið eigið í vandræðum með að finna vörumynd á netinu.
Með Google Lens appinu getiði tekið mynd af vörunni ykkar með símanum og Google finnur vörunna með leitarvél sinni. Einnig er hægt að fara inná Google Image og klikka þar á Google Lens og hlaða inn mynd af vörunni ykkar og leitavélin sér um rest.

Copyright: Þegar þú ákveður að selja hjá MUNIR þá samþykkir þú að við fáum leyfi til að nota upplýsingar sem þú hefur vistað á síðunni þinni, eins og myndir og upplýsingar um vöru sem við munum nýta til að auglýsa.