Hvernig verðlegg ég notaða hönnunarvöru?

17/12/2024
skrifað af Munir ehf

Kosturinn við að kaupa gæði fram yfir annað er að varan fellur ekki mikið í verði með tímanum. Flott hönnunarljós á borð við Louis Poulsen, Flos, Fritz Hansen, Gubi og fleiri eru einfaldlega góð fjárfesting þar sem verðgildi vörunnar helst með árunum vegna gæða vörunnar. Sambærileg ný vara hækkar með verðbólgu og því er söluverð vörunnar sem þú keyptir ekki að falla. 

Það getur verið snúið að verðsetja notaða vöru og þess vegna tókum við saman nokkur atriði sem við teljum að sé gott er að hafa í huga þegar þú skráir notaða vöru til sölu. Við viljum taka það fram að þetta er eingöngu tillaga og okkar álit, seljandinn sjálfur þarf að finna það hjá sér hvað hann er tilbúinn að selja vöruna á.


Vara seld á 70-80% verði nýrrar vöru:

  1. Tiltölulega ný vara og í góðu ástandi.
  2. Ástand og útlit vöru mjög gott þótt varan sé nokkra ára gömul.
  3. Ófáanleg vara/hætt í framleiðslu í góðu ástandi.

Vara seld á 60% verði nýrra vöru:

  1. Nokkra ára gömul vara í ágætu ástandi.
  2. Sér örlítið á vörunni.
  3. Vinsæl vara sem þarfnast smá yfirhalningu.

Vara seld á 50% verði nýrra vöru: 

  1. 10+ ára gömul vara í góðu ástandi
  2. Vara sem þarfnast smá yfirhalningu
  3. Vinsæl var sem sést vel á notkun hennar en stendur enn fyrir sínu.

Vara seld á 30-40% verði nýrra vöru:

  1. Gömul vara sem mikið er til af í endursölu
  2. Vara sem þarfnast viðgerðar


 Ef þú ert í vandræðum að verðleggja vöru þá getur þú haft samband við okkur hjá Munir og við reynum okkar allra besta að aðstoða þig við að verðleggja vöruna.