Karfan er tóm
Áttu eigulega muni sem þú vilt samt eiginlega ekki eiga?
Það er okkar markmið að sameina það fólk sem hefur áhuga á vandaðari hönnun úr gæða efnum, ásamt því að vera umhugað um umhverfið okkar og stuðla að minni fjöldaframleiðslu. Hér viljum við veita þeim vettvang til að finna eða selja vandaða hönnunarmuni á einfaldan máta.
Kostir við að selja hjá Munir:
- Það er frítt að stofna aðgang og skrá vörur til sölu hjá Munir. Við fáum bara greitt þegar þú færð greitt!
Söluþóknunin er 15% af kaupverðinu. - Vettvangurinn - Hér sameinast fólk sem kann að meta vandaða vöru og góða hönnun.
- Gæðaeftirlit - Við yfirförum allar vörur og samþykkjum þær sem eiga heima hér. Varan þín verður því
umkringd öðrum vönduðum vörum. - Nafnleynd - Þegar fólk skoðar vörurnar þá er eingöngu notendanafnið þitt sýnilegt.
- Drop-off / pick-up staðir - Við erum í samstarfi við tvær verslanir í Reykjavík þar sem hægt er að
skilja eftir seldar vörur, kaupandi kemur svo á sínum tíma að sækja. - Örugg greiðsluleið - Allar greiðslur fara í gegnum Munir. Seljandi fær ekki greitt fyrr en
kaupandi hefur staðfest móttöku. Þannig tryggjum við örugg viðskipti fyrir báða aðila. - Auglýsingar - Við leggjum upp úr því að vekja athygli á síðunni okkar og vörunum sem þar eru til sölu.
- Flokkun - Gott skipulag á síðunni einfaldar kaupendum að finna nákvæmlega það sem þau leita að.
- Hringrásin - Af hverju að geyma hluti inni í geymslu þegar þú getur komið þeim á nýtt heimili.
- Umhverfisvernd - Kaupum notaðar og vandaðar vörur í stað þess að kaupa nýtt.