Söluleiðbeiningar hjá Munir 

Að stofna aðgang     

Ýttu á Nýskráning hér efst á síðunni og fylltu inn þínar upplýsingar. Þú færð svo sent lykilorð í tölvupósti sem þú notar til að skrá þig inn.

Að skrá vöru til sölu     

Skráðu þig inn og veldu Búðin mín neðst á skjánum. Þar geturðu breytt upplýsingunum þínum, skráð vörur til sölu, fylgst með sölunni og séð skilaboð frá hugsanlegum kaupendum. Til að skrá nýja vöru til sölu velurðu Mínar vörur og svo Bæta við vöru. Hér fyllirðu út heiti vöru, lýsingu og verð, velur réttan flokk og setur inn myndir. Eftir að þú ýtir á Vista birtist flipi sem heitir Eiginleikar en þar geturðu fyllt inn fleiri upplýsingar um vöruna þína á einfaldan hátt. Eftir að þú vistar vöruna geturðu alltaf farið aftur inn í hana og breytt eða bætt við upplýsingum. Við munum svo yfirfara vöruna og samþykkja hana ef hún uppfyllir öll skilyrði.

Vörulýsing     

Það er mikilvægt að lýsa vörunni vel og taka fram ef það sér á vörunni eða ef það leynast einhverjir gallar. Einnig er gott að kynna sér hvort varan sé enn í framleiðslu eða hvort hún hafi verið framleidd í takmörkuðu magni eða eitthvað slíkt. Góðar upplýsingar auka líkurnar á sölu og fækka skilaboðum frá kaupendum.

Verðlagning     

Það má nálgast almennar leiðbeiningar um verðlagningu hér. Ef þig vantar frekari aðstoð þá er alltaf hægt að heyra í okkur hjá info@minirmunir.is

Myndir af vörum     

Best er að hafa nokkrar myndir af vörunni og snyrtilegt að finna vörumynd á netinu ef það er í boði, en vörumynd er skýr mynd af vörunni með hvítum bakgrunni. En það er líka nauðsynlegt að vera með skýrar myndir af þinni vöru og leggja þá áherslu á að hafa fátt annað í bakgrunni og myndirnar í fókus. Ef það sér á vörunni þá þarf að láta fylgja mynd af því svo það sjáist vel. Betri leiðbeiningar um hvernig hægt er að taka góðar myndir af vörum er að finna hér

Eiginleikar     

Ekki gleyma að fylla inn í flokkinn Eiginleikar en hann birtist eftir að þú hefur vistað fyrstu upplýsingarnar um vöruna. Þar geturu valið í fellilista vörumerki, lit, ástand og hvaðan varan er keypt.

Hvað gerist svo?

Við reynum að fara hratt yfir þær vörur sem koma inn á vefinn okkar. Um leið og varan er samþykkt fer hún í sölu hjá Munir, þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar varan fer í sölu. Ef varan fær ekki samþykkt sendum við þér skilaboð um ástæðu þess.
Áhugasamir kaupendur geta sent þér fyrirspurnir um vörur sem þú ert með á sölu. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar þær berast.

Vöruskil     

Munir hefur ekki milligöngu þegar kemur að vöruskilum. Við hvetjum kaupendur til þess að hafa samband beint við seljanda ef eitthvað kemur upp. Því er mikilvægt að hafa allar upplýsingar skýrar varðandi galla á vörunni og láta myndir fylgja með svo ekkert komi kaupendum á óvart þegar vörurnar berast þeim.

Skilyrði     

Munir leggur áherslu á gæða húsmuni sem endast vel og henta því vel í endursölu. Við viljum auðvelda fólki að finna þessar vörur og búa þannig til þægilegt umhverfi til að finna sér vandaða muni á betra verði.
Einnig verða að fylgja vörunum góðar myndir og nákvæm vörulýsing.

Endilega hafið samband við okkur ef eitthvað er óljóst: info@minirmunir.is