um okkur
um okkur
Munir er markaðstorg fyrir notaðar hönnunarvörur og aðra vandaða húsmuni. Hér er hægt að finna notuð húsgögn, ljós, borðbúnað, húsmuni, bækur, barnavörur og fleira. Hér getur þú keypt vandaðar vörur fyrir lægri upphæð og um leið valið umhverfisvænni kost. 
Í dag er mikið af vörum fjöldaframleiddar úr óumhverfisvænum eða lélegum efnivið. Við viljum sýna fram á kosti þess að vanda valið frá byrjun, velja betri hráefni og stuðla þannig að betri hringrás. Hér færðu möguleika á að kaupa vandaðar vörur úr gæða efnum með ódýrari verðmiða og um leið velja umhverfisvænni kost. Við viljum að vandaðir munir séu í boði fyrir alla og gera kaup og sölu á notaðri hönnunarvöru skemmtilega.