Okkar loforð:
Örugg greiðsluleið. Seljandi fær ekki greitt fyrr en kaupandi staðfestir móttöku.
Ef ástand vöru er ekki eins og í vörulýsingu hefur kaupandi rétt á endurgreiðslu innan 24 klukkustunda frá móttöku.
Cloud Dancer frá Raawii, hannaður af danska listamanninum Michael Kvium, er kertastjaki sem fer langt út fyrir hefðbundna hugmynd um nytjahlut. Hann er hluti af JAM-línunni frá árinu 2018, þar sem list og hönnun mætast í óvenjulegum formum sem vekja bæði forvitni og umhugsun.
Hvert eintak er handgert og gljáð í Portúgal, sem þýðir að smávægilegur munur í áferð og lögun gefur hverjum grip sinn eigin karakter. Cloud Dancer er fyrir þau sem elska að skreyta heimilið sitt með óvenjulegum og einstökum hlutum.
Þetta eintak er alveg ónotað og enn í kassa. Verð er 90.000 kr en líka opin fyrir tilboðum. Fullt verð á nýjum er um 130.000 kr.