Okkar loforð:
Örugg greiðsluleið. Seljandi fær ekki greitt fyrr en kaupandi staðfestir móttöku.
Ef ástand vöru er ekki eins og í vörulýsingu hefur kaupandi rétt á endurgreiðslu innan 24 klukkustunda frá móttöku.
Einstaklega fallegur bogalaga sófi og stóll eftir Svein Kjarval. Hægt er að hafa saman eða í sitthvoru lagi. Settið var yfirdekkað fyrir sex árum en einnig fylgir með bekkur úr sömu línu sem er þó óuppgerður.
Samskonar sett er á Hönnunarsafni Íslands og lesa má meira um þessa einstöku hönnun hér:
Raðsófi Sveins Kjarvals kom fram um 1960. Sjáanleg og einföld grind eininganna var gerð úr afrórmósíuvið (líkist tekki – stundum nefnt gulltekk) og voru grindurnar framleiddar á húsgagnaverkstæðum í Reykjavík allt fram á áttunda áratuginn. Mjög var vandað til bólstrunar sætanna í samræmi við lögun mannslíkamans.
Raðsófinn var fáanlegur sem einsæti, tvísæti, þrísæti eða horn og þegar átak var gert eftir 1964 til að kynna framleiðsluna hafði stökum borðum verið bætt við húsgagnalínuna — og til urðu SK—raðhúsgögn.
Með raðsófanum var vandinn leystur á ýmsan hátt. Hann gaf ótal nýja möguleika. Hann gat verið frístandandi og þannig skipt stofunni í aðskilin svæði – einnig settur í horn eða fyrir framan glugga til að njóta útsýnis. Það var reyndar hægt að raða honum „á hvern þann hátt sem bezt hentar“ eins og ein auglýsingin hljóðaði á þessum tíma.
Verð 480.000 eða besta boð.
Okkar loforð:
Örugg greiðsluleið. Seljandi fær ekki greitt fyrr en kaupandi staðfestir móttöku.
Ef ástand vöru er ekki eins og í vörulýsingu hefur kaupandi rétt á endurgreiðslu innan 24 klukkustunda frá móttöku.