Okkar loforð:
Örugg greiðsluleið. Seljandi fær ekki greitt fyrr en kaupandi staðfestir móttöku.
Ef ástand vöru er ekki eins og í vörulýsingu hefur kaupandi rétt á endurgreiðslu innan 24 klukkustunda frá móttöku.
Þetta glæsilega borðstofusett frá Cassina er hannað af ítalska hönnunardúóinu Afra og Tobia Scarpa árið 1965. Stólarnir eru eitt af þekktari verkum þeirra og endurspegla einstaka nálgun þeirra á efni, form og notagildi.
Stólarnir einkennast af sterkri viðargrind með fallegum samskeytum og léttu en ákveðnu formi. Hér mætast mjúkar línur og skýr hugmynd af hönnun á einstaklega fallegan hátt.
Borðið er ekki síður áhugavert. Það er 130 × 130 cm en hægt er að stækka það með útdraganlegri viðbótarplötu sem tvöfaldar stærð þess. Snjöll og tímalaus hönnun sem sameinar fagurfræði og notagildi.
Settið er frá 1980 og samanstendur af átta stólum og stækkanlegu borði. Það sér aðeins á því eftir árin, en er almennt í góðu standi. Fallegt dæmi um ítalska hönnun sem hefur elst einstaklega vel og á enn fullt erindi inn á heimili nútímans.