Okkar loforð:
Örugg greiðsluleið. Seljandi fær ekki greitt fyrr en kaupandi staðfestir móttöku.
Ef ástand vöru er ekki eins og í vörulýsingu hefur kaupandi rétt á endurgreiðslu innan 24 klukkustunda frá móttöku.
Stórglæsilegt og einstakt skrifborð frá Soho Home, en það er vörumerki tengt Soho House, alþjóðlegum klúbbi sem er þekkt fyrir stórglæsilega veitingastaði og hótel um allan heim. Soho Home sækir innblástur í húsgögn, efnisval og stemningu Soho House-staðana og hótela og gerir þannig sambærilegan stíl fyrir heimilið. Hönnunin einkennist meðal annars af blöndu af klassískum formum, ríkulegum efnum og hlýlegum, tímalausum glæsileika.
Wallace skrifborðið frá Soho Home sameinar skúlptúrkennda lögun og áberandi náttúrulega viðaráferð. Borðið er með mjúkum, bogadregnum línum og yfirborði úr Mappa Burl viðarspóni sem gerir það að sannkölluðum miðpunkti í rýminu. Hönnunin sækir innblástur í 180 House, glæsilegt hótel í London, og sameinar þannig klassíska skrifstofuhúsgagnahönnun og fágaðan, nútímalegan stíl.
Þetta eintak er alveg nýtt og ónotað, en það var sérpantað hingað heim og komst svo ekki fyrir.
Okkar loforð:
Örugg greiðsluleið. Seljandi fær ekki greitt fyrr en kaupandi staðfestir móttöku.
Ef ástand vöru er ekki eins og í vörulýsingu hefur kaupandi rétt á endurgreiðslu innan 24 klukkustunda frá móttöku.