Vipp er danskt fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í hágæða hönnun og framleiðslu
á innanhússhönnunarvörum, með sérstakan áherslu á eldhús- og baðvörur. Fyrirtækið var
stofnað árið 1939 þegar Holger Nielsen smíðaði pedalafötu fyrir hárgreiðslustofu eiginkonu
sinnar, fatan átti bara að vera nytsamlegur hlutur sem reyndist vera ótrúlega vel hannaður.
Síðan þá hefur Vipp byggt upp sterka ímynd fyrir að bjóða upp á vandaða og tímalausa
hönnun.

Frá pedalafötu til hágæða eldhúseininga
Í dag hefur Vipp stækkað verulega — þó þau framleiði enn pedalafötuna nánast óbreytta, framleiðir fyrirtækið nú fjölbreytt úrval tímalausra hönnunarvara,
allt frá vönduðum munum fyrir baðherbergi og eldhús yfir í lýsingu og stærri húsgögn og jafnvel forsmíðuð heimili. Allt í anda þeirrar hráu, iðnaðarlegu
fagurfræði sem Vipp hefur haldið tryggð við frá upphafi.
Eitt af stærstu og djörfustu skrefunum hjá Vipp var þegar þau hófu framleiðslu á eldhúsum. Fyrsta eldhúsið kom út árið 2011 og var einstakt: frístandandi,
samsett úr duftlökkuðu stáli, ryðfríu stáli og áli. Eldhúsið var ekki hannað sem innbyggð lausn, heldur sem húsgagn — sterkbyggt, færanlegt og hannað til að
endast í áratugi. Þetta er iðnaðarhönnun sem mætir heimilislífi.

Þú finnur hágæða eldhús frá Vipp hjá Munir