Verslaðu notaða muni hjá okkur

Það er okkar markmið að sameina það fólk sem hefur áhuga á vel hönnuðum og vönduðum vörum ásamt því að vera umhugað um umhverfið okkar. Við viljum veita þeim vettvang til að finna eða selja vandaða hönnunarmuni á einfaldan máta.
         

Kostir við að versla hjá Munir

  • Gæðaeftirlit - Allar vörur eru samþykktar af okkur áður en þær fara í sölu á Munir.
  • Umhverfisvernd - Kaupum notaðar og vandaðar vörur.
  • Örugg greiðsluleið - Seljandi fær ekki greitt fyrr en kaupandi hefur staðfest móttöku. Þannig tryggjum við örugg viðskipti. 
  • Flokkun - Gott skipulag á síðunni einfaldar kaupendum að finna nákvæmlega það sem þau leita að.

Leiðbeiningar fyrir þá sem versla hjá Munir

1. Búðu til aðgang

Veldu NÝSKRÁNING eða byrjaðu að finna þinn drauma mun, þú getur líka búið til aðgang þegar þú greiðir.

2. Veldu flokka 

Veldu flokk eftir því sem þig vantar eða langar í. Einnig er góður leitagluggi efst á síðunni.

TIP: Retró eru gamlir munir sem eru vel gerðir og vandaðir en ekki endilega vitað hver hannaði.

3. Settu í körfu eða safnaðu á óskalista

Ekki bíða of lengi samt! Því hver og einn hlutur er einstakur!

4. Senda eða sækja?

Seljendur tilgreina hvað þau bjóða upp á, eða þú getur sent á viðkomandi skilaboð.

5. Greiðsluuplýsingar.

Þegar þú færð svo vöruna í hendurnar er mikilvægt að staðfesta móttöku því þá fær seljandi greitt. 

Vöruskil?

Munir hefur ekki milligöngu með vöruskilum, en það er alltaf hægt að hafa samband við seljanda í gegnum síðuna okkar.

Þarf að gera muninn upp? Skráðu þig á póstlistann okkur og fáðu innblástur.

Hægt er að bæta hlutum á óskalista, en ekki bíða of lengi, því varan gæti selst! Hlutur í óskalista er ekki fráttekinn.

Ef eitthvað er óskýrt eða þú vilt koma einhverju til skila má alltaf hafa samband við okkur: info@minirmunir.is