Hvernig tek ég góðar myndir?

Þegar þú ákveður að selja vöru á Munir er mikilvægt að vanda myndatökur til að auka líkurnar á að hluturinn seljist. 

Því nákvæmari myndir og fleiri, því meiri líkur eru á sölu. Munum á síðunni okkar þurfa að fylgja að minnsta kosti 3 myndir. 

Við mælum alltaf með að bæta við vörumynd af netinu með hvítum bakgrunn og hafa fremst. Sjá frekari upplýsingar hér fyrir neðan.


Hér eru nokkur góð ráð:

  1. Hafðu auðan bakgrunn
  2. Notaðu góða birtu, helst dagsbirtu
  3. Taktu myndir frá mismunandi sjónarhornum
  4. Taktu mynd af merki vörunnar
  5. Taktu mynd af göllum eða hnjaski ef á við
  6. Ekki nota myndir sem eru úr fókus
  7. Ekki nota filtera á myndirnar
  8. Láttu vörumynd af vörunni fylgja með

1. HAFÐU AUÐAN BAKGRUNN

Vandaðu valið á bakgrunni fyrir myndatökuna og færðu óþarfa hluti úr mynd. Best væri að mynda við hvítan vegg því dökkir fletir draga úr birtu og gefa ekki skýra mynd.

2. NOTAÐU GÓÐA BIRTU

Mikilvægt er að mynda í góðri birtu, því myndirnar verða þá skýrari. Best er að mynda í dagsbirtu en passaðu að birtan skíni ekki beint á hlutinn. Það getur verið erfitt að mynda hluti á veturna hér á Íslandi en þá er best að reyna nýta dagsbirtuna eða góða lýsingu inni. Mikilvægt er að birtan komi frá hliðinni ekki beint að ofan, t.d. með því að nota góðan borðlampa. Forðastu að nota flass.


3. TAKTU MYNDIR FRÁ MISMUNANDI SJÓNARHORNUM

Fyrsta myndin af vörunni þarf að sýna allan hlutinn. Það er mikilvægt að taka nokkrar myndir frá mismunandi sjónarhornum og í nærmynd sem sýnir smáatriði. Þegar vörur eru myndaðar er gott að taka mynd beint framan á vöruna en ef varan er lítil getur verið gott að leggja hana á borðið og mynda hana þar.

4. TAKTU MYND AF GÖLLUM

Til að koma í veg fyrir að fólk skili vörunni er mjög mikilvægt að mynda alla galla eða hnjask sem hluturinn hefur orðið fyrir. Kaupandi á að vita af öllum göllum, hvort sem það er rispa, blettur, högg eða beygla. Gott er að nota málband til að sýna stærð á gallans.

5. TAKTU MYND AF VÖRUMERKI VÖRUNNAR

Mikilvægt að taka mynd af vörumerki vörunnar ef það er sýnilegt.


6. EKKI NOTA MYNDIR ÚR FÓKUS

Skýrar myndir sýna betur vöruna og því meiri líkur á sölu.


7. EKKI NOTA “FILTER” OG EKKI VINNA MYNDIRNAR

Mikilvægt að nota ekki filter því litur vörunnar breytist töluvert við það. Myndirnar þurfa að endurspegla vöruna eins og hún er í dag.


8. FINNDU VÖRUMYND AF VÖRUNNI

Við viljum biðja ykkur að finna eina vörumynd af vörunni og raða henni fremst í myndaröðina. Við mælum með að nota Google Lens ef þið eigið í vandræðum með að finna vörumynd á netinu. 

Með Google Lens appinu getiði tekið mynd af vörunni ykkar með símanum og Google finnur vörunna með leitarvél sinni. Einnig er hægt að fara inná Google Image og klikka þar á Google Lens og hlaða inn mynd af vörunni ykkar og leitavélin sér um rest.


Copyright: Þegar þú ákveður að selja hjá MUNIR þá gefur þú okkur leyfi til að nota upplýsingar sem þú hefur vistað á síðunni, eins og myndir og upplýsingar um vöru sem við munum nýta við auglýsingu.