Skilmálar
Notendakilmálar
Eftirfarandi skilmálar gilda um sölu, kaup og/eða þjónustu á vefsíðunni www.minirmunir.is. Eigandi minirmunir.is er Munir ehf., kt. 440424-1550, hér eftir nefnt Munir. Skilmálarnir ná til allra notanda á Munir, bæði söluaðila og kaupenda. Með því að samþykkja skilmála Munir lýsir þú því yfir að þú hafir lesið, skilið og samþykkir þessa skilmála í heild sinni. Einnig með því að stofna nýjan aðgang eða með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskipti ertu að samþykkja skilmála Munir. Munir áskilur sér rétt til þess að gera breytingar á notendaskilmálum einhliða og fyrirvaralaust, en allar slíkar breytingar verða kynntar á vef Munir. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og tryggjum við örugg viðskipti á netinu til okkar viðskiptavina.
Minirmunir.is er rekið af Munir ehf. - kt. 440424-1550
Hafa samband
Instagram: @minirmunir.is
Almenn skilyrði og notanda upplýsingar
Það er frítt að stofna aðgang og skrá vöruauglýsingu á Munir.
Munir tryggir öruggt greiðsluferli, en kaupandi greiðir fyrir vöruna í gegnum vefsíðuna okkar og seljandi fær svo greitt 1 virkum degi eftir að varan hefur borist kaupanda. Við skráningu auglýsingar á vöru til sölu færist eignarréttur af vörunni sjálfkrafa af seljanda og yfir á Munir. Munir tekur 15% í söluþóknun þegar varan er seld.
Það er stranglega bannað að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu inn á Munir. Notendanafn þarf ekki að vera þitt eigið nafn, þar máttu láta hugmyndaflugið ráða ríkjum en við samþykjum ekki dónaleg notendanöfn. Notendanafn er sýnilegt öllum notendum og því ákvörðun hvers notenda hvort hann noti sitt eigið nafn eða annað.
Munir áskilur sér allan rétt til þess að loka eða eyða notendaaðgangi ef aðgangurinn er talinn brjóta gegn notendaskilmálum okkar eða íslenskum lögum. Einnig ef aðgangur er talinn misnota þjónustu Munir á einhvern hátt.
Ef um brot er að ræða mun Munir vinna náið með lögreglu og veita henni upplýsingar sem nauðsynlegar eru.
Allar notendaupplýsingar sem skráðar eru hjá okkur eru ekki aðgengilegar þriðja aðila og farið verður með öll gögn sem persónuupplýsingar samkvæmt lögum. Munir heitir notendum fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem notandi gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Notandi ber ábyrgð á því að passa uppá að allar upplýsingar sem tengjast aðgangi sínum séu eingöngu sýnilegar honum. Ef þig grunar að einhver hafi aðgang að notendaaðgangi þínum ber þér skylda að tilkynna það til okkar hjá Munir. Í slíkum tilvikum áskilur Munir sér þann rétt að loka fyrir notendaaðganginum sem um ræðir.
Vandamál við innskráningu
Munir getur ekki ábyrgst að þjónusta þess sé ávalt aðgengileg, þar sem upp getur komið tilvik þar sem síðan nær ekki sambandi eða netþjónar liggja niðri. Við munum þá gera okkar allra besta að koma vefnum aftur upp eins fljótt og hægt er, einnig er Munir ekki ábyrgur fyrir þeim óþægindum sem notandur gætu hafa upplifað vegna þess.
Vöruskráning
Seljendum er leyfilegt að skrá margar vöruauglýsingar á vefverslun Munir. Seljandi ber ábyrgð á að vörulýsing og myndir af vörunni sýni rétt ástand. Mikilvægt er að skrá inn allar upplýsingar um vöruna, eiginleika hennar og þrjár eða fleirri myndir af vörunni. Mikilvægt er að mynda alla galla og vera gegnsær um ástand vörunnar.
Ef um villu eða ónákvæmni í vörulýsingu er um að ræða ber seljandi ábyrgð á því. Seljandi ber einnig ábyrgð ef varan er móttekin af kaupanda í öðru ástandi en því sem kemur fram í vörulýsingu eða á mynd. Eðlilegt er að það sjáist á notuðum hlutum en það þarf að koma skýrt fram ef það er einhver galli, hnjask, beygla, blettur, brot eða annað sem hefur áhrif á útlit vörunnar.
Ef við fáum kvartanir eða tilkynningar varðandi misvísandi eða ófullnægjandi vörulýsingar eða mynda þá munum við hafa samband við seljanda og ráðleggja honum. En Munir áskilur sér rétt til að banna seljendur ef við teljum um brot á reglum.
Athygli er vakin á því að kaupandi kynni sér vel ástand vörunnar fyrir kaup með því að lesa vörulýsingu, skoða myndir af vöru. Einnig er hægt að senda skilaboð á seljanda og fá nánari upplýsingar um vöruna ef þörf er á.
Við skráningu auglýsingar á vöru til sölu færist eignarréttur af vörunni sjálfkrafa af seljanda og yfir á Munir.
Persónuleg viðskipti
Öll viðskipti milli notanda á Munir teljast sem persónuleg viðskipti. Allar vörur eru keyptar í því ástandi sem þær eru, án afturköllunarréttar.
Munir er milliliður í viðskiptum notanda, hvort sem það er þeirra sem skrá vöru og selja eða þeirra sem kaupa. Við skráningu auglýsingar á vöru til sölu hjá Munir færist eignaréttur af vörunni sjálfkrafa af seljanada og yfir á Munir.
Munir er samt sem áður ekki ábyrgur fyrir viðskiptum milli seljenda og kaupenda. Ef sala á kaup hefur verið staðfest ber seljandi skylda að afhenta vöru til kaupanda innan 4 daga og má þar með ekki selja hana til annars notanda.
Öll viðskipti á söluauglýsingum eru bindandi. Þegar kaupandi hefur greitt fyrir vöru ber seljanda skylda að afhenta honum vöruna.
Seljendur eru sjálfir ábyrgir fyrir því að fylgja öllum lögum og reglum er kemur að virðisaukaskatti og tilkynningum til skattayfirvalda.
Eignarréttur seljanda
Seljandi sem setur vöru á sölu á Munir verður að geta sýnt fram á fullan eignarétt á vörunni auk þess að geta sýnt fram á það að eignaréttur á vörunni færist yfir á kaupanda þegar sölu líkur.
Við skráningu auglýsingar á vöru til sölu færist eignarréttur af vörunni sjálfkrafa af seljanda og yfir á Munir. Þegar vara er keypt af seljanda færist eignarétturinn yfir á kaupanda.
Ábyrgð seljanda
Sem seljandi á Munir ert þú ábyrgur fyrir:
- Að samskipti séu heiðarleg
- Að upplýsingar um vöru, vörulýsing og myndefni sé réttar.
- Að ef samþykkt er að senda vöru til kaupanda að standast þau skilyrði sem snúa að sendingu á vöru.
- Að halda utan um allar upplýsingar hvað varðar flutningsgögn vörunnar, sendingarnúmer og staðfestingu.
- Ef sending finnst ekki en seljandi er með staðfestingu um flutning, þá er hann ábyrgur að hafa samband við flutningsþjónustu og komast í botns hvar varan er niður komin. Ef seljandi er í vandræðum hvernig skal bera að þá er hægt að Hafa samband
- Að brjóta ekki gegn hugverkaréttindum eða öðrum réttindum einstaklings eða lögaðila
- Að brjóta ekki gegn gildandi löggjöfum á Íslandi hvort sem það er refsivert, aðgerðarhæft eða annað.
- Að miðla ekki rangar, óheiðalegar, villandi, blekkjandi eða móðgandi upplýsingar
- Að myndefni sé ekki klámfengið
Öll birt verð eru staðgreiðsluverð og með virðisaukaskatti. Það er því á ábyrgð seljanda að gefa upp réttar upplýsingar til skattayfirvalda tengdar tekjum af viðskiptum sem fram fara í gegnum Munir. Það er ekki á ábyrgð Munir að tilkynna seljendur til skattayfirvalda eða á nokkurn hátt hafa eftirlit með skattgreiðslum tengdum viðskiptum sem fram fara á Munir. Munir ber þannig enga ábyrgð á skattamálum notenda sinna.
Ábyrgð kaupanda
Sem kaupandi á Munir ert þú ábyrgur fyrir:
- Að samskipti séu heiðarleg
- Að brjóta ekki gegn hugverkaréttindum eða öðrum réttindum einstaklings eða lögaðila
- Að brjóta ekki gegn gildandi löggjöfum á Íslandi hvort sem það er refsivert, aðgerðarhæft eða annað.
- Að miðla ekki rangar, óheiðalegar, villandi, blekkjandi eða móðgandi upplýsingar
- Að senda ekki myndefni sem er klámfengið
- Að ganga úr skugga um að réttar persónuupplýsingar séu skráðar áður en viðskipti á Munir fara fram, með því ertu að tryggja að allar upplýsingar um sendingu frá sendingaraðilum séu skýrar og skili sér á réttan stað.
- Að tilkynna Munir þegar varan hefur verið afhent.
Þegar greiðsla á vöru hefur verið staðfest á Munir, er sala og kaup á vöru bindandi. Seljandi má ekki selja vöruna til annars notanda og ber skylda að afhenta kaupanda vöruna.
Ef keypt vara hefur verið afhent en stenst ekki þeirra lýsinga, mynda eða er fölsuð, getur kaupandi tilkynnt atvikið til Munir. Tilkynningin þarf að koma strax eða áður en greiðsla til söluaðila fer fram, sem er 1 degi eftir afhendingu.
Kaupandi ber ábyrgð á vöru eftir að vara hefur verið afhent flutningsaðila, ef um staðfestingu á póstsendingu er um að ræða frá seljanda.
Allar vörur sem eru til sölu á Munir eru í því ástandi sem tilgreint er, sem sagt seljendur ber skylda að tilgreina alla galla vörunnar í vörulýsingu. Kaupandi ber ábyrgð á því að kynna sér ástand vörunnar áður en varan er keypt. Við hvetjum kaupendur til að skoða vel vörulýsingar og myndir af vöru ásamt því að spyrja seljanda nánar út í ástand vöru áður en vara er keypt. Vakin er athygli á 20. gr. laga um lausafjárkaup nr. 59/2000, en þar segir:
- –1. mgr. Kaupandi getur ekki borið neitt það fyrir sig sem galla sem hann vissi eða mátti vita um þegar kaupin voru gerð.
- –2. mgr. Hafi kaupandi rannsakað söluhlut áður en kaupin voru gerð eða hafi hann án gildrar ástæðu látið undir höfuð leggjast að sinna hvatningu seljanda um slíka rannsókn getur kaupandi ekki borið fyrir sig neitt það sem hann hefði þá átt að veita athygli. Þetta gildir þó ekki ef seljandi hefur sýnt af sér vítavert gáleysi eða framferði hans að öðru leyti verið andstætt heiðarleika og góðri trú.
- –3. mgr. Reglur 2. mgr. gilda einnig hafi kaupandi fyrir kaup rannsakað sýnishorn af hlutnum eða látið það hjá líða án gildrar ástæðu og gallinn varðar eiginleika sem mátti sjá á sýnishorninu.
Ef keypt vara passar ekki við vörulýsingu eða myndir sem seljandi setur fram, telst málið vera milli þín og seljanda. Kaupandi skal hafa samband við seljanda innan 24 klukkustunda frá því að vara hefur verið sótt á afhendingarstað sendingaraðila. Náist ekki samkomulag milli kaupanda og seljanda, eða seljandi svarar ekki fyrirspurnum kaupanda innan 24 klukkustunda, er kaupanda heimilt að hafa samband við Munir eða tilkynna seljanda með því að fylla út formið “tilkynna viðskipti” sem staðsett er neðst á vefsíðunni. Tímarammi til að hafa samband við Munir til að fá aðstoð við að leysa málið eru 14 dagar frá móttöku vöru. Við ráðleggjum bæði seljendum og kaupendum í samræmi við íslensk lög og notendaskilmála Munir. Munir getur tekið til þess að gefa út viðvaranir eða lokað notendaaðgöngum ef notendaskilmálum eða öðrum reglum er ekki fylgt.
Seljandi ber ábyrgð á að koma vörunni til kaupanda eigi seinna en 4 dögum eftir að hún hefur verið seld. Einnig að varan sé í góðum umbúðum ef á að senda hana með pósti eða öðrum flutningsleiðum. Munir ber ekki ábyrgð ef varan skemmist eða týnist í flutningum.
Seljandi ber einnig ábyrgð að senda vöruna í því ástandi sem samið var um í vörulýsingu og á myndum. Ef kaupandi telur vöruna ekki vera í því ástandi sem hann keypti hana í hefur kaupandi rétt á því að hafa samband við seljanda og leysa málið þeirra á milli en ef lausn í máli næst ekki er hægt að hafa samband við Munir innan 24 klukkustundir frá móttöku vörunnar og tilkynna seljanda. Það er því mikilvægt að seljandi tryggi að allar lýsingar og myndir af vöru séu nákvæmar.
Í tilfellum þar sem sendingar skila sér ekki til kaupenda þarf seljandi alltaf að hafa til staðar öll þau skjöl sem staðfesta að varna hafi verið sent með flutningaraðila, staðfesting á póstdreifingu eða með framvísun á rekjanlegu sendingarnúmeri. Þess vegna er mikilvægt að seljandi geymi vel allar þær upplýsingar sem hann fær þegar hann skráir vöru í sending.
Ef seljandi getur ekki sýnt fram á slík gögn sem staðfesta að varan hafi verið send áfram getur kaupandi krafið seljanda um endurgreiðslu. Ef seljandi getur hinsvegar sýnt fram á staðfestingu á sendingu vörunnar færist ábyrgðin og áhættan á týndri vöru yfir á kaupanda.
Áhætta af flutningi vöru flyst alfarið yfir á kaupanda þegar seljandi hefur afhent vöruna til sendingaraðila og hefur móttekið sendingarnúmer og staðfestingu um móttöku vörunnar frá sendingaraðila. Mælt er með því að seljandi sendi kaupanda sendingarnúmerið í gegnum spjall á Munir til þess að kaupandi geti fylgt eftir sendingunni.
Hægt er að kaupa tryggingu hjá flutningsaðilum ef um dýra vöru er að ræða. Seljandi og kaupandi þurfa að huga sjálfir að því.
Munir vilja vekja athygli á 19. gr. laga um lausafjárkaup sem fjallar um hlut seldan á uppboði “í því ástandi sem hann er”, en þar segir eftirfarandi:
- — 1. mgr. Þótt söluhlutur sé seldur “í því ástandi sem hann er” eða með öðrum áþekkum almennum fyrirvara telst hann gallaður þegar:
- —a. hluturinn svarar ekki til þeirra upplýsinga sem seljandi hefur gefið um hann, eiginleika hans eða not og ætla má að þessi atriði hafi haft áhrif á það að kaup gerðust;
- —b. seljandi hefur við kaupin vanrækt að gefa upplýsingar um atriði sem verulega máli skipta varðandi hlutinn eða not hans og seljandi hlaut að þekkja til og kaupandi mátti ætla að hann fengi upplýsingar um, enda megi ætla að vanrækslan hafi haft áhrif á kaupin eða
- —c. ástand söluhlutar er til muna verra en kaupandi hafði ástæðu til að ætla miðað við kaupverð og atvik að öðru leyti.
- – Skrifleg yfirlýsing frá viðurkenndum seljanda eða söluaðila viðkomandi vörumerkis
- – Nákvæmar og skýrar ljósmyndir, t.d af merki vörunnar eða númeri á vöru auk ítarlegrar lýsingar sem rökstyður kröfu þína.
- Ef seljandi sendir ekki frá sér vöruna innan 4 daga verður upphæðin færð aftur inn á reikning kaupanda. -
- Ef seljandi hins vegar sendir frá sér vöruna áður en 4 daga fresturinn rennur út, eru viðskiptin talin staðfest og 1 virkum degi eftir að varan er móttekin er hlutur seljandans millifærður inn á reikning seljanda.
- Ekki er leyfilegt að auglýsa til sölu vörur eða annað efni sem brjóta gegn höfundarétti, öðrum hugverkarétti, eða íslenskum lögum.
- Ekki er leyfilegt að auglýsa til sölu lyf eða fæðubótaefni af nokkru tagi.
- Ekki er leyfilegt að auglýsa til sölu matvæli, sælgæti, drykkjavörur, áfengi, orkudrykki, eða gæludýrafóður af nokkru tagi.
- Ekki er leyfilegt að auglýsa til sölu lifandi dýr eða uppstoppuð dýr
- Ekki er leyfilegt að auglýsa til sölu vopn, skotvopn, eða sprengiefni af nokkru tagi.
- Ekki er leyfilegt að auglýsa til sölu vöru eða áskriftir sem fela í sér kröfu um frekari kaup síðar meir.
- Ekki er leyfilegt að auglýsa til sölu vöru sem er fölsuð.
Vöruskil
Ef kaupandi vill skila vörunni þarf að hafa samband við seljanda, en Munir hefur ekki milligöngu á slíku.
Ef vara sem er afhent er ekki í því ástandi eins og lýst var með orðum eða myndum getur kaupandi tilkynnt Munir allt að 24 klukkustundum eftir afhentingu og verður málið tekið til skoðunar. Þegar málið hefur verið skoðað og samþykkt verður endurgreiðsla gerð um leið og vara hefur verið endursend til seljanda eða til Munir.
Endursendingu á vöru til seljanda þarf að gerast innan 4 virka daga frá því sendingarupplýsingar hafa verið gefnar upp, á afhendingarstað sendingaraðila. Ef vara er ekki móttekin af sendingaraðila innan þessa tímaramma verður krafa um endurgreiðslu felld úr gildi
Kaupandi getur þannig ekki óskað aftur eftir skilum á vöru eða endurgreiðslu með hjálp Munir eftir að frestur rennur út.
Ef seld vara er ekki send til kaupanda innan 4 daga, fær kaupanda endurgreitt strax.
Ef kaupandi hefur grun á falsaðri vöru, verður seljandi að geta sannað mál sitt.
Skjöl málinu til sönnunar gætu t.d. verið:
Greiðsluleiðir
Munir tryggir öruggt greiðsluferli í gegnum Nets en Munir eru í viðskiptum við Fjárflæði. Kaupandi greiðir fyrir vöruna í gegnum vefsíðuna okkar og seljandi fær svo greitt einum virkum degi eftir að varan hefur borist kaupanda. Greiðslur fara fram með korti í gegnum Nets sem þjónustar mörg fyrirtæki í Evrópu. Seljendur skrá bankaupplýsingar sínar inn á sínum aðgangi og við hjá Munir millifærum hlut seljanda einum virkum degi eftir að varan hefur borist kaupanda. Ef kaupandi gerir ekki athugasemd við ástand vörunnar verður greiðsla framkvæmd, í síðasta lagi 1 virkum degi eftir að vara hefur verið afhent til kaupanda. Athugið að greiðslan birtist á yfirliti seljanda næsta virka dag eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Töf getur verið á greiðslum ef um frí- eða helgidaga er um að ræða.
Sala, Kaup og Trúnaður
Munir heitir notendum fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem notandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Í öllum samskiptum milli seljenda og kaupenda, er sala sögð bindandi fyrir bæði kaupanda og seljanda í samræmi við lög um lausafjárkaup nr. 50/2000 eða eftir því sem við á lög um neytendakaup nr. 48/2003.
Þegar gengið er frá greiðslu á Munir, er upphæðin dregin af korti kaupanda. Upphæðin er geymd þar til 1 virkum degi eftir að kaupandi hefur móttekið vöruna. Seljandi hefur 4 daga til að afhenda vöru til sendingaraðila.
-
-
Myndefni í söluauglýsingum
Þegar notanda setur inn myndir við söluauglýsingu á Munir, er það á ábyrgð notandans að tryggja að myndirnar tilheyri honum sjálfum og brjóti ekki lög gegn höfundarétti.
Með því að setja inn myndir samþykkja notendur að:
Munir sé leyfilegt að nota myndirnar í auglýsingaskyni og sé frjálst að birta myndirnar í fréttabréfum, bloggum, og auglýsingum á samfélagsmiðlum.
Munir sé leyfilegt að hreinsa út bakgrunn á myndum til þess að vörumynd líti betur út og passi við útlit síðunnar.
Munir geymir og vistar allar söluauglýsingar, einnig þær sem eru merktar óvirkar, í gagnagrunni sínum. Munir ber ekki ábyrgð ef söluauglýsingar birtast á leitarsíðum á internetinu.
Hægt er að tilkynna til Munir ef notanda grunar að söluauglýsing brjóti í bága við reglur og skilmála Munir, höfundarétt, hugverkarétt, eða íslensk lög. Allar slíkar tilkynningar skulu sendast með tölvupósti á Munir eða með skilaboðum inná Munir, facebook eða Instagram reikning okkar.
Óleyfileg viðskipti
Vörur sem eru ekki leyfilegar að selja á Munir eru listaðar hér að neðan. Einnig er ekki leyfilegt að setja til sölu á Munir ólöglegar vörur samkvæmt íslenskum lögum.
Hér er listi yfir ólöglegar vörur, sem ekki má selja á Munir:
Brot á skilmálum
Ef notendur brjóta skilmála eða taka út vörur til að selja öðrum notendum án þess að greiða þóknun áskilur Munir sér þann rétt að banna notendur. Við hjá Munir vonum að notendur sjái hag sinn í að nýta sér þennan söluvettvang og þá þjónustu sem er boðið upp á.
Hlutverk og ábyrgð Munir ehf. í tengslum við viðskipti
Vörur sem auglýstar eru til sölu á Munir, með skráningu á söluauglýsingu, eru settar upp af notendum sjálfum. Munir starfar sem milliliður með sölu milli seljenda og kaupenda á vörum sín á milli.
Að því leyti sem lög gera ráð fyrir samþykkir þú að bæta Munir og starfsmönnum þess upp fyrir hvers konar tjón eða skaða sem komið gæti til vegna, eða í tengslum við, viðskipti notenda. Munir ber ekki ábyrgð á hegðun notenda sem nýta sér þjónustu Munir. Hefji þriðji aðili málarekstur á hendur Munir vegna notkunar annarra á þjónustunni ber notanda að verja Munir í slíkum málum og bæta það beina og óbeina tjón sem Munir kann að verða fyrir vegna þess.
Með samþykki á skilmálum þessum samþykkja notendur að Munir ber ekki ábyrgð á hegðun seljenda eða kaupanda í tengslum við viðskipti þeirra á milli, né heldur þeim vörum sem auglýstar eru til sölu. Munir kemur ekki til með að taka á sig skyldur notenda standist notandi ekki eftirfarandi kröfur. Ákveðin vernd fylgir því að versla í gegnum Munir. Munir tekur virkan þátt með því að hafa milligöngu með málum þar sem annar hvor aðili stendur ekki við skuldbindingar sínar, að því skilyrði að áður tilgreindum skilmálum um milligöngu sé fylgt.
Fyrirvari
Munir hefur enga stjórn á eða er ábyrgt fyrir gæðum, öryggi, eða lögmæti þeirra vara sem auglýstar eru, sem tengjast viðskiptum milli notenda, eða hvort seljandi hafi vilja eða getu til að selja eða senda áfram vöru, né heldur hvort kaupandi hafi vilja eða getu til að greiða fyrir vöru. Munir tekur engan þátt í og hefur engin afskipti af samningaviðræðum á kaupum og sölum á vörum í viðskiptum milli notenda. Í samskiptum og samningaviðræðum milli notenda geta komið upp tilvik óæskilegrar hegðunar, eða birtingu óleyfilegra upplýsinga, sem brotið geta í bága við lög eða skuldbindingar notenda, og ber Munir enga ábyrgð á slíkum tilvikum.
Öll brot gegn skilmálum þessum veita Munir heimild til að loka á aðgang viðkomandi aðila.
Verði hluti þessara skilmála talinn ógildur af þar til bærum yfirvöldum eða dómstólum skal það ekki hafa áhrif á gildi skilmálanna að öðru leyti.
Greiðslur og sendingar frá notendum
Í viðskiptum milli notenda, hefur Munir enga stjórn á því hvort notendur greiða fyrir vörur eða senda þær áfram líkt og sammælst var um. Munir ber enga ábyrgð á því hvort seljandi sendi frá sér seldar vörur eða kaupandi greiði fyrir vörur eftir því sem samið var um.
Athugið frekar skilmála um ábyrgð notenda og skilmála Munir sem milliliðar í viðskiptum notenda.
Skráning, meðferð og verndun persónuupplýsinga
Á vef Munir er aðgengileg persónuverndarstefna félagsins (sjá persónuverndarstefnu hér). Í persónuverndarstefnu kemur fram hvernig Munir umgengs þær persónuupplýsingar sem Munir geymir um notendur og hvaða réttindi þeir eiga varðandi upplýsingarnar.
Aðgangur á Munir Notendaaðgangur á Munir tengist greiðslukerfi Munir. Hægt er að nota notendaaðgang til að taka þátt í viðskiptum á Munir, sem bæði kaupandi og seljandi. Skrásetja þarf greiðslukort við aðganginn til að geta átt viðskipti, kaup og sölu, í gegnum Munir.
Gildistími
Skilmálar þessir eru gefnir út af Munir ehf. og gilda frá og með 19. Desember 2024 og til þess tíma er nýir skilmálar taka gildi.