Okkar loforð:
Örugg greiðsluleið. Seljandi fær ekki greitt fyrr en kaupandi staðfestir móttöku.
Ef ástand vöru er ekki eins og í vörulýsingu hefur kaupandi rétt á endurgreiðslu innan 24 klukkustunda frá móttöku.
Einstaklega vel með farinn Wassily stóll með sérpöntuðu gráu leðri sem gefur honum aðeins mýkra útlit. Þessi stóll gerir öll rými töluvert áhugaverðari!
Fá hönnunarhúsgögn eru jafn auðþekkjanleg og Wassily stóllinn frá Knoll. Hann var hannaður árið 1925 af Marcel Breuer og markaði tímamót með notkun á beygðum stálrörum sem voru innblásin af reiðhjólagrind. Þótt útlitið sé einfalt og létt er stóllinn bæði sterkur og einstaklega formfagur. Stóllinn hét upphaflega Model B3 en fékk síðar nafnið Wassily til heiðurs málaranum Wassily Kandinsky. Knoll framleiðir stólinn enn í dag en hann er sannkallað tákn Bauhaus-hreyfingarinnar og alltaf jafn flottur.